Velferðarsjóður barna hefur ákveðið að veita félaginu Einstök börn styrk að fjárhæð 10 milljónir króna til að styðja við starf Drekahóps, sem er faglegt stuðningsúrræði fyrir yngstu börnin og fjölskyldur þeirra. Stuðningurinn byggir á reglulegu hópastarfi þar sem börn, foreldrar og systkini fá stuðning við hæfi undir leiðsögn fagfólks.

Einstök börn eru stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma og sjaldgæf heilkenni. Um 900 börn og fjölskyldur þeirra njóta þjónustu félagsins í formi ráðgjafar, fræðslu og stuðnings. Þegar fjölskyldur barnanna eru taldar með nær starfsemi félagsins til um 4.500 einstaklinga.

Þrátt fyrir að sinna mikilvægu hlutverki í þágu barna með flóknar og krefjandi aðstæður nýtur félagið ekki reglubundins stuðnings af fjárlögum. Styrkurinn mun styrkja starfsemi félagsins og stuðla að áframhaldandi þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Samhliða styrknum til Einstakra barna veitir Velferðarsjóður barna Rjóðrinu styrk að fjárhæð 2,5 milljónir króna til uppbyggingar leiksvæðis á lóð heimilisins. Markmiðið er að bæta aðstöðu barna sem dvelja þar og skapa öruggt og aðlaðandi útivistarsvæði sem styður við leik, hreyfingu og samveru barna og fjölskyldna þeirra.

Rjóðrið er hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og fötluð börn. Velferðarsjóður barna hafði frumkvæði að stofnun heimilisins og lagði til stofnfé við uppbyggingu þess. Frá opnun árið 2004 hefur Rjóðrið veitt börnum og fjölskyldum þeirra mikilvægan stuðning og hvíld.

Styrkirnir voru afhentir við athöfn í Rjóðrinu þar sem fulltrúar Einstakra barna, Rjóðursins og Velferðarsjóðs barna komu saman. Með styrkjunum vill Velferðarsjóður barna leggja sitt af mörkum til að bæta lífsgæði barna og fjölskyldna þeirra sem takast á við alvarleg veikindi og þær áskoranir sem þeim fylgja.